European Grand Prix Legnica Pólland Ísland fjórða stærsta þjóðin.

25 Apríl hefst European Grand Prix í Legnica Póllandi.

Samtals eru 11 Íslendingar skráðir í alla flokka. Skemmtilegt er frá að segja að Ísland er fjórða stærsta þjóðin í þáttöku á mótinu, aðeins Ítalía (14), Úkraína (12) og heimalandið Pólland (12) eru með fleiri þáttakenndur en Ísland á þessu móti.

Það er gífurlega mikið magn af nýju fólki að keppa í fyrsta skipti frá Íslandi á þessu World Ranking Móti (heimslitamót). Aðeins 3 af þeim sem eru að fara hafa keppt áður á slíku stórmóti, Guðjón Einarsson, Guðmundur Örn Guðjónsson og Astrid Daxböck.

Þeir nýju eru í sveigboga karla, Einar Hjörleifsson, Ólafur Gíslason og Ingólfur Rafn Jónsson. Í trissuboga karla er Rúnar Þór Gunnarsson og trissuboga kvenna Gabríela Íris Ferreira (16 ára) og Ewa Polsaj. Það verður gaman að sjá hvernig þessir nýju einstaklingar plumma sig í pressuni sem er á svona stórmótum.

Þess má geta að Ólafur, Ingólfur og Gabríela tóku einnig þátt á Indoor World Cup í Marrakesh nóvember síðasta árs og þau hafa því fengið smá reynslu af stórum mótum.

European Grand Prix (í stuttu máli EGP) eru næst erfiðustu bogfimimót á vegum Evrópu bogfimisambandsins á eftir Evrópumeistaramótinu.

Tvö European Grand Prix eru haldin á hverju ári en það er aðeins haldið eitt Evrópumeistaramót á tveggja ára fresti. Evrópumeistaramótið verður næst haldið 2018 og má því segja að EGP Legnica sé stærsta bogfimimót innan Evrópu þetta árið.

Við hjá archery.is gerum ráð fyrir því að Ísland muni hækka tölvuvert á heimslista í öllum flokkum á þessu móti, hve mikið fer eftir hvað fólkið okkar stendur sig vel. Við setjum ekki háar vonir á medalíu að þessu sinni enda eru töluvert sterk lið og einstaklingar að keppa á svæðinu og við frá litla Íslandi erum frekar nýleg í bogfimi. En það er ekki útilokað, trissuboga kvenna liði okkar er að verða frekar sterkt og þær eiga séns á að berjast um medalíu á mótinu ÁFRAM ÍSLAND. Sjá stöðu Íslands áður en mótið hófst neðast á síðuni.

Hægt er að finna frekari upplýsingar um mótið hér fyrir neðan.

http://archery-legnica.pl/?page_id=14&lang=en

Skor og niðurstöður verða birtar á þessum síðum hér fyrir neðan jafnóðum og þau verða ljós.

Liveskor https://info.ianseo.net/?tourid=348
Liveskor https://worldarchery.org/competition/17072/european-grand-prix-2017-leg-1#/

Niðurstöður http://ianseo.net/Details.php?toId=2022

Staða Íslands á heimslista í Liðakeppni fyrir EGP Legnica 2017

(fyrsta talan er núverandi sæti, seinni talan er sætið sem liðið var fyrir síðustu breytingu á listanum)
(3 menn eða 3 konur eru lið)
Liðakeppni RecurveMen
73 75 Iceland ISL flag 0.000
Liðakeppni CompoundMen
60 59 Iceland ISL flag 0.000
Liðakeppni CompoundWomen
32 31 Iceland ISL flag 19.200

Staða Íslands á heimslista í BLANDAÐRI Liðakeppni fyrir EGP Legnica 2017

(fyrsta talan er núverandi sæti, seinni talan er sætið sem liðið var fyrir síðustu breytingu á listanum)
(einn maður og ein kona gera blandað lið)

Blönduð liðakeppni Compound Mixed Team
55 51 Iceland ISL flag 11.550
Blönduð liðakeppni Recurve Mixed Team
69 72 Iceland ISL flag 0.000
Ég set líka hérna inn stöðuna á heimslista einstaklinga fyrir keppnina. En það verður kannski ekki mikið að marka hana eftir mótið þar sem það eru gífurlega margir nýjir einstaklingar að keppa fyrir Íslands hönd.
(fyrsta talan er núverandi sæti, seinni talan er sætið sem einstaklingurinn var fyrir síðustu breytingu á listanum)
RecurveMen
265 267 Sigurjon Sigurdsson ISL flag 12.700
334 380 Gudmundur Orn Gudjonsson ISL flag 8.500
599 601 Carlos Gimenez ISL flag 2.000
724 743 Carsten Tarnow ISL flag 0.000
RecurveWomen
333 327 Astrid Daxbock ISL flag 5.700
557 557 Olof Gyda Risten Svansdottir ISL flag 0.000
557 557 Sigridur Sigurdardottir ISL flag 0.000
CompoundMen
226 232 Gudjon Einarsson ISL flag 11.000
248 276 Gudmundur Orn Gudjonsson ISL flag 9.600
483 490 Daniel Sigurdsson ISL flag 3.500
483 490 Kristmann Einarsson ISL flag 3.500
CompoundWomen
94 92 Astrid Daxbock ISL flag 27.500
185 180 Margret Einarsdottir ISL flag 10.300
185 180 Helga Kolbrun Magnusdottir ISL flag 10.300
Allar þessar upplýsingar er einnig hægt að finna á https://worldarchery.org/world-ranking
Óskum okkar fólki besta gengis og vonum að það verði ekki snjór á mótinu 🙂

ÁFRAM ÍSLAND