Bogfimifélagið Boginn tekur titilinn í parakeppni trissuboga (Nói og Freyja) gegn Íþróttafélaginu Akri 154-150

Nói Barkarsson og Freyja Dís Benediktsdóttir unnu mixed team félagsliða Íslandsmeistaratitilinn fyrir Bogfimifélagið Bogann með 154 stig af 160 mögulegum.

Alþjóðlega er aðeins keppt í blandaðri liðakeppni (mixed team eða parakeppni) utandyra og var þeirri keppni einnig bætt við á Ólympíuleikana í Tókýó. Mun meiri líkur eru á því að minni félagslið nái að tefla fram blönduðu liði og því var ákveðið að bæta þeirri keppni einnig við í félagsliðakeppni innandyra á Íslandi þrátt fyrir að það sé ekki gert erlendis. Því litu skífurnar líklega furðulega út fyrir reyndum keppendum þar sem klippa þurfti niður skífur til þess að fá þær 4 skífur sem þarf fyrir parakeppni innandyra.

Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í úrslitakeppni félagsliða para á Íslandsmeistaramóti Innanhúss og parið því með Íslandsmet í trissuboga liða útsláttarkeppni. Félagsliðakeppni hefur verið partur af Íslandsmótum áður en hafa verðlaun almennt verið veitt byggt á skorum úr undankeppni.

Íslandsmeistaramótið er haldið 26-27 nóvember 2021 í Bogfimisetrinu Dugguvogi 2, Reykjavík. Keppt var í trissuboga og berboga flokkum í dag og á sunnudaginn mun keppendur í sveigboga keppast um sína titla.

Á Íslandsmeistaramótum er keppt í þrem bogaflokkum, trissuboga, berboga og sveigboga. Flestir keppendur keppa aðeins í einum bogaflokki og hægt að hugsa um muninn á milli þeirra svipað og  handbolta, körfubolta og blak. Þetta eru allt boltaíþróttir þar sem hendur eru notaðar en flestir stunda aðeins eina af þeim. Einnig halda tvö efstu lið í kvenna og karla áfram í gull úrslit og einnig tvö efstu blönduð lið keppa einnig í gull úrslitum (mixed team).

Hægt er að finna heildarúrslit, dagskrá og tengt mótinu í skorskráningarkerfinu ianseo hér á ianseo.net

Sýnt var beint frá úrslitum dagsins í dag á Archery TV Iceland youtube rásinni hér https://www.youtube.com/watch?v=tK-6bqokdM4 og einnig verður sýnt beint frá mótinu á morgun í sveigboga á sömu youtube rás.