Astrid að hefja keppni á EM í bogfimi í dag

EM í field í Slóveníu er að hefjast núna. Astrid er að keppa í annað sinn í víðavangsbogfimi (field). En hún keppti fyrst í þessari tegund bogfimi fyrr á þessu ári á Evrópuleikum 30+ á Ítalíu þar sem hún tók silfur.

Astrid er með konum frá Tékklandi og Finlandi í hóp í trissuboga opnum flokki (Compound Women). Markmiðið hjá Astrid er að týna/skemma sem fæstar örvar og reyna að komast í hóp top 22 kvenna sem komast í útsláttarkeppni.

Hægt verður að fylgjast með úrslitum EKKI LIVE á ianseo.net Rétt rúmlega 200 manns eru að keppa á mótinu í heild. 26 í trissuboga kvenna.

Fyrsti dagur undankeppni er í dag. Áætlað er að undankeppnin í dag verði um 6 klukkutímar og að heildarniðurstöður dagsins verði komnar um 16:00 á staðartíma.

Á fyrsta degi er skotið er á 24 skotmörk á ómerktum vegalengdum. Skotið er 3 örvum á hvert skotmark og hámarks stig per ör er 6 stig. Annar dagur undankeppni er á morgun þar er skotið á 24 skotmörk á þekktum vegalengdum frá 5 metrum upp í 60 metra.

Æfingardagur og búnaðarskoðun var í gær og gekk vel þrátt fyrir vandræðin sem gengu á við að komast til Slóveníu. https://archery.is/em-farar-strandaglopar-i-thyskalandi/

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af æfinguni.