Archery.is Íslandsbikarinn forgjafarmót – Iceland Cup Series Archery.is

Við erum að starta nýrri mótaröð Iceland Cup.

Mót eru haldin mánaðarlega fyrsta Sunnudaginn í hverjum mánuði milli 18:00 og 20:00 í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2.

Ingólfur Rafn Jónsson og Tryggvi Einarsson ætla að sjá um skotklukku, halda utan um skorblöð og taka við greiðslu á mótum. Guðmundur Örn Guðjónsson sér um að birta skor, forgjafarútreikninga, reglur og skipuleggja dagsettningar og tíma. Dómari er hver sem er viðstaddur á mótinu með réttindi eða reynslu (en dæmir ekki sjálfann sig).

Þetta er forgjafarmót og tilgangur þess er að verðlauna þá sem eru að sýna mestu framför í stigum á hverju ári, mótið sem nýliðarnir eiga mestann séns á að vinna 🙂

Reglurnar eru:

1. Þeir sem taka þátt í fyrsta skipti verða að koma með 6 skor af æfingu 60 örvar á 18 metrum á 40cm skífu (triple eða full face) vottaða af einstaklingi sem tók þátt í skorskráningu (það má leggja saman 30 og 30 örvar þó þau skor hafi ekki verið tekin á sama degi).

2. Skotið er 60 örvum í heild á 18 metrum 40cm triple eða full face. 30 örvar, 10 mínútur í pásu og svo aftur 30 örvar. Áætlaður tími á mótinu er allt að 2 tímar með verðlaunaafhendingu.

3. Það er ekki kvenna og karla flokkur það keppa öll kyn saman. Það eru engir aldursflokkar eða aldurstakmörk vegna forgjafarinnar er ekki þörf á þeim.

4. Það eru bara 2 bogaflokkar sveigbogi og trissubogi.

5. Verðið fyrir þáttöku á hverju móti er 2.500.kr (þeir sem eru ekki með mánaðarkort eða svipaða áskrift í Bogfimisetrinu þurfa að greiða tímagjaldið á brautarleigu ef þeir skjóta í Bogfimisetrinu sem er 1.100.kr per klst fyrir meðlimi bogfimifélagana (á ekki við um þá sem eru út á landi sem skjóta á öðrum svæðum))

6. Forgjöfin reiknast svona: skorin af síðustu 6 mótum er reiknuð saman “600-(mót1+mót2+mót3+mót4+mót5+mót6)/6=forgjöfin sem bætist við skorið úr því móti sem er keppt á”. Þeir sem eru að skora yfir meðaltali enda með skor sem er hærra en 600, þeir sem skora undir meðaltali skora undir 600, þannig að það er auðvelt að fylgjast með framför 🙂 (fyrstu 6 mótin á hverju ári eru æfingarskorin sem er skilað inn fyrir þá sem eru nýjir eða síðust 6 skor frá síðasta ári fyrir þá sem hafa keppt áður, einnig er góð leið að skila inn síðustu 6 skorum úr keppnum sem þú hefur tekið þátt í)

7. Ef skorið með forgjöf er endar í broti eins og 587,5 eða 587,1 verður skorið námundað upp í næstu heilu tölu, 588.

8. Félög úti á landi mega taka þátt. Þeir taka þá skor í vikuni fyrir mótið þegar þeir eru með aðgang að æfingar aðstöðu og fá vott til taka þátt í skor skráningu og staðfesta að skorið sé rétt og senda það með mynd af skorblaði og skotskífu á e-mailið hjá mótshöldurum, Tryggvi Einarsson <tryggvi@archery.is> og Ingólfur Rafn J. <ingolfur.rj@archery.is> (athugið þeir sem eru út á landi taka bara eitt skor með skotklukku með nýja skotskífu, semsagt undir keppnis aðstæðum)

9. Á síðasta mótinu á árinu, fyrsta sunnudaginn í desember, er veittur Íslandbikarinn í trissuboga og sveigboga. Bikarinn er gefinn út til þess einstaklings sem er búinn að sýna mestu framförina í skori í sínum flokki. Að lágmarki verður keppandinn að taka þátt í 6 mótum yfir árið til að eiga möguleika á að vinna bikarinn, samtals verða 12 mót á ári, eitt í hverjum mánuði.

10. Bikarmeistarinn er valinn á þennan veg. Skorin með forgjöf af öllum mótum hjá hverjum einstaklingi fyrir sig eru lögð saman og deilt með fjölda móta sem hann keppti á. “(Mót1+mót2+mót3+….)/fjölda sem var keppt á=lokaskorið”. Sá sem er með hæstu stigin er Íslandsbikarmeistarinn.

11. Einungis þeir sem taka þátt í síðasta bikarmótinu, sem er fyrsta sunnudaginn í desember, geta unnið Íslandsbikarinn (þeir sem eru út á landi geta fylgst með verðlaunaafhendingu á einhverskonar livestream, ákveðum það nákvæmlega þegar nær dregur desember 2017)

12. Verðlaunafé verður í sveigboga og trissuboga fyrir þá sem hreppa bikarinn 15.000.kr í sveigboga og 15.000.kr í trissuboga. Annað og þriðja sæti fá 5.000.kr í öllum flokkum. (Verðlauna fé verður mögulega hækkað ef þáttaka er mikil)

13. Aflögu peningar sem verða til vegna mótshalds fara í að borga niður þjálfara námskeiðs ferðir Ingólfs og Tryggva. World Archery level 1, 2 og 3.

14. Með fyrirvara um smávægilegar breytingar. Þar sem mótaröðin er ný og ekki komin reynsla á hana.

15. Keppt verður í sveigboga og trissuboga samtímis þannig að þeir sem keppa í báðum flokkum verða að velja sér bogaflokk, eða skjóta trissuboga og sveigboga á þeim 2 mínútum sem þeir hafa, semsagt skjóta 6 örvum (3 compound og 3 recurve) á 2 mínútum.

16. Á loka mótinu í Desember verður einnig gefin ein medalía fyrir hæsta meðal skor án forgjafar í báðum flokkum.