Anna María keppir í brons úrslitum á laugardaginn á Evrópumeistaramótinu í bogfimi

Anna María Alfreðsdóttir mun keppa um brons verðlaun á Evrópumeistaramótinu í bogfimi kl 11:30-12:00 að staðar tíma í Koper í Slóveníu laugardaginn 19 febrúar.

Anna vann í dag í 8 manna úrslitum gegn Pil Munk Carlsen frá Danmörku á Evrópumeistaramótinu í bogfimi í dag 143-142 í mjög spennandi leik. Anna hélt því áfram í undanúrslit trissuboga kvenna U21.

Í undanúrslitum um hver myndi fara í gull eða brons leikinn keppti Anna gegn Lok Songul frá Tyrklandi í gífurlega spennandi leik þar sem þær skiptust a að halda forskotinu. Lok var með 2 stiga forskot eftir næst síðustu umferðina. Í síðustu umferðinni gaf sú Tyrkneska ekkert færi a sér og skaut fullkomið skor 30 og Anna tapaði því 145-141. Anna mun því keppa í brons úrslitum á laugardaginn.

Anna er aðeins annar Íslenski keppandinn sem mun keppa um verðlaun í U21 flokki á Evrópumeistaramóti. Guðbjörg Reynisdóttir gerði það fyrst árið 2019, en Guðbjörg mun keppa seinna í dag í 8 manna úrslitum fullorðinna á EM.