Alexía tók titilinn í berboga U16 kvenna og setti 2 Íslandsmet á Íslandsmót ungmenna

Alexía Lív Birgisdóttir í BF Boganum tók gullið í berboga kvenna U16 á Íslandsmóti Ungmenna um helgina. Mótið var haldið 27 Júní á Víðistaðatúní í Hafnarfirði af Bogfimisambandi Íslands.

Alexía setti einnig einstaklings Íslandsmet í undankeppni berboga kvenna U16 með 204 stig, ásamt Íslandsmeti í tvíliðaleik (mixed team) með Þórir Freyr Kristjánssyni.

Þetta var fyrsta utandyra mót Alexíu.

Hægt er að sjá úrslit á ianseo.net