18 að keppa á Norðurlandameistarmóti Ungmenna

18 keppendur á leið á Norðurlandameistarmót Ungmenna í bogfimi í Danmörku.10 stelpur og 8 strákar.

8 úr BF Boganum í Kópavogi, 6 úr ÍF Akur á Akureyri, 2 úr Skotfélagi Ísafjarðar, 1 frá BF Hróa Hetti í Hafnarfirði og 1 úr UMF Eflingu á Laugum Samtals eru 264 keppendur á mótinu í 3 aldursflokkum.

Keppnin verður helgina 6-7 Júlí.

Helstu keppendur til að fylgjast með eru:

Guðbjörg Reynisdóttir ver hún titilinn sinn í berboga U21 (Junior) kvenna í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði. Guðbjörg varð tvöfaldur Norðurlandameistari á NUM í fyrra í Noregi og er talin mjög líkleg til að endurtaka það í ár. Þrátt fyrir að hafa snúið boganum sínum öfugt þegar hún setti hann saman fyrir úrslitakeppnina um gullið í fyrra.

Eowyn Mamalias í trissuboga U16 (Nordic cadet) kvenna í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi. Eowyn var nýlega meðal 7 keppenda sem kepptu á Evrópuleikunum  og var þar bæði lang yngsti keppandinn fyrir Ísland og meðal allra þjóða í bogfimi. Heimssambandið birt grein um hana hér. Eowyn er talin líkleg til að koma með medalíu heim þar sem hún var í 3 sæti í undankeppni á NUM í fyrra en týndi gikknum sínum í útsláttarkeppninni og tapaði því fyrsta útslættinum þar sem hún náði ekki að skjóta öllum örvunum.

Nói Barkarson í trissuboga U18 (WA cadet) karla í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi. Nói var í 4 sæti á NUM í undankeppni í fyrra en það var í U16 flokki. Þetta verður í fyrsta skipti sem hann keppir í U18 flokki og er því að keppa á 50 metrum í stað 30 metra í fyrra og verður áhugavert að fylgjast með hvernig honum gengur í næsta aldursflokki fyrir ofan.

Flokkar sem er vert að fylgjast með eru:

U21 (junior) sveigboga karla við erum með 4 keppendur í þeim flokki, meðal annars Aron í ÍF Akur og Ásgeir í UMF Eflingu sem sýndu þar flotta takta á NUM í fyrra og enduðu í 11 og 12 sæti.

U16 (Nordic Cadet) trissubogi kvenna erum við einnig með 4 stelpur sem eru allar úr BF Boganum í Kópavogi sem gætu komið heim með fleiri en 1 einstaklings verðlaun.

Rakel Arnþórsdóttir ÍF Akur sem er að keppa í U21 (Junior) sveigboga kvenna verið að sýna mikla framför og náði meðal annars bronsi á Íslandsmótinu innahúss í opnum flokki fyrr á árinu.

Við bíðum eftir Íslandsmeta tilkynningunum.

Hér fyrir neðan er listi af þeim sem eru að keppa frá Íslandi.

ALFREDSDOTTIR Anna Maria 33C Compound WA Cadet Women Ses. 1
ANDRESDOTTIR Tinna Rut 8C Recurve WA Junior Women Ses. 1
ARNTHORSDOTTIR Rakel 9C Recurve WA Junior Women Ses. 1
BARKARSON Noi 32C Compound WA Cadet Men Ses. 1
BIRGIRSSON Petur Mar M 52D Recurve Nordic Cadet Men Ses. 1
ELFARSSON Georg Runar 4C Recurve WA Junior Men Ses. 1
GUDMUNDSSON Baldur Ingimar 19C Recurve WA Cadet Men Ses. 1
HILMARSDOTTIR Marin Anita 53D Recurve Nordic Cadet Women Ses. 1
HRAFNSDOTTIR Katrin Birna 56D Compound Nordic Cadet Women Ses. 1
KRISTJANSDOTTIR Agata Vigdis 59D Compound Nordic Cadet Women Ses. 1
KRISTJANSDOTTIR Lilja Dis 20C Recurve WA Cadet Women Ses. 1
LOTSBERG Aron Orn Olason 6C Recurve WA Junior Men Ses. 1
MAMALIAS Eowyn Marie 57D Compound Nordic Cadet Women Ses. 1
REYNISDOTTIR Gudbjorg 35D Barebow WA Junior Women Ses. 1
SIGMUNDSSON Bjorn 7C Recurve WA Junior Men Ses. 1
SIGURDSSON Sveinn Mani 55D Compound Nordic Cadet Men Ses. 1
STEFANSDOTTIR Olína 58D Compound Nordic Cadet Women Ses. 1
UNNSTEINSSON Asgeir Ingi 5C Recurve WA Junior Men Ses. 1

 

Hægt verður að fylgjast með úrslitum jafnóðum og þau eru birt á ianseo.net